| Heimasíða Svenna í Siglufirði Hér við íshaf byggð var borin bærinn ........ | ||
| 01.03.2009 13:47UnglingaskemtistaðurVæri ekki upplagt að gera gamla Allann (Alþýðuhúsið) skemtistað fyrir unglinga. Aldurshóparnir frá 14 - 17 ár hafa ekki marga staði til að fara á um kvöld og helgar. Það var öldin önnur að þegar ég var orðinn 16 ára að þá mátti ég fara á almenna dansleiki. Nú verður fólk að verða orðið 18 ára til að fara á almenna dansleiki, þar sem að áfengi er selt á viðkomandi stöðum. En þó má enginn yngri en 20 ára kaupa áfengi á þessum stöðum, hvað svo sem þar gerist, ég reikna nú með því að það sé verslað fyrir þá yngri. En hvernig væri nú að Sparisjóðirnir, í fararbroddi, tækju sig til ásamt öðrum fyrirtækjum og stofnunum í Ólafsfirði og Siglufirði (Fjallabyggð) og gerðu gott átak í þessu máli. Þarna væri hægt að vera með margskonar starfsemi og hugsa ég líka til stofnunar Æskulýðsfélags í þessu sambandi, en þannig starfsemi var mjög öflug hér á árum áður, en þá voru margir klúbbar í gangi, ljósmyndaklúbbur,frímerkjaklúbbur o.s.fr.v. 
 Skrifað af Sveinn Þorsteins. | Flettingar í dag: 7389 Gestir í dag: 46 Flettingar í gær: 9916 Gestir í gær: 148 Samtals flettingar: 1118486 Samtals gestir: 53734 Tölur uppfærðar: 31.10.2025 11:00:53 Um mig Nafn:Sveinn Þorsteinsson Farsími:848-4143 Tölvupóstfang:svennith@simnet.is Staðsetning:Siglufjörður Önnur vefsíða:http://siglofuglar.123.is/ Tenglar | |
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is