Heimasíða Svenna í Siglufirði Hér við íshaf byggð var borin bærinn ........ |
||
07.03.2009 13:25Bræla hvað !!!!!!!!Sæmileg bræla þetta ! Varla fyrir sjóveika ! Smellið á linkinn hér að neðan. http://www.youtube.com/watch?v=mPBaqh3dcVM Skrifað af Sveinn Þorsteins. 06.03.2009 13:10Hvernig endar þetta ?Það er orðið þannig í dag, að krónan okkar er orðin svo lítils virði að menn taka hanna ekki upp þó hún liggi fyrir fótum þeirra. Hér að ofan eru myndir af vægast sagt verðlitlu gjaldmiðli og vonandi endar okkar króna ekki í þessum ósköpum. En mér dettur í hug, ef ekki þarf að kosta miklu til, að við ættum að færa verðgildi okkar ástkæru krónu upp í það sem áður var gert. Sem sagt með því að taka eitt eða núll af, eða sem dæmi að 10 krónur yrðu þá að verðgildi 1 krónu og eða þá 100 krónur að 1 krónu ef tvö núll yrðu tekin af. Þetta könnumst við við frá myntbreitingunni sem var frammkvæmd 1980. Skrifað af Sveinn Þorsteins. 01.03.2009 13:47UnglingaskemtistaðurVæri ekki upplagt að gera gamla Allann (Alþýðuhúsið) skemtistað fyrir unglinga. Aldurshóparnir frá 14 - 17 ár hafa ekki marga staði til að fara á um kvöld og helgar. Það var öldin önnur að þegar ég var orðinn 16 ára að þá mátti ég fara á almenna dansleiki. Nú verður fólk að verða orðið 18 ára til að fara á almenna dansleiki, þar sem að áfengi er selt á viðkomandi stöðum. En þó má enginn yngri en 20 ára kaupa áfengi á þessum stöðum, hvað svo sem þar gerist, ég reikna nú með því að það sé verslað fyrir þá yngri. En hvernig væri nú að Sparisjóðirnir, í fararbroddi, tækju sig til ásamt öðrum fyrirtækjum og stofnunum í Ólafsfirði og Siglufirði (Fjallabyggð) og gerðu gott átak í þessu máli. Þarna væri hægt að vera með margskonar starfsemi og hugsa ég líka til stofnunar Æskulýðsfélags í þessu sambandi, en þannig starfsemi var mjög öflug hér á árum áður, en þá voru margir klúbbar í gangi, ljósmyndaklúbbur,frímerkjaklúbbur o.s.fr.v.
Skrifað af Sveinn Þorsteins. 27.02.2009 14:21ÓtitlaðNýtt skrifstofuhúsnæði Einingar - Iðju - Siglufirði Nýtt húsnæði Einingr-Iðju hér í Siglufirði er óðum að taka á sig nýja mynd og verður allt hið glæsilegasta utan sem innan. Gott aðgengi verður fyrir alla, en er ekki boðlegt í núverandi húsnæði. Það húsnæði mun vera selt til Sparisjóðs Siglufjarðar. Skrifað af Sveinn Þorsteins. 27.02.2009 08:59Frumraun !Sælir allir sem villast hérna inn. Ég hef ráðist í það að pára hér inná mínar leindustu hugsanir. Skrifað af Sveinn Þorsteins. 26.02.2009 18:24Þessir FrammsóknarmennÞessir Frammsóknarmenn !Hvað eru Frammsóknarmenn að leika með því að tefja Seðlabankafrumvarpið. Þessi framganga verður flokknum ekki til framdráttar í komandi kosningum og hefur sett Höskuld niður um mörg þrep. Þetta heyrir maður frá mörgum frómum manninum sem batt vonir við þenna annars ágæta mann.Þetta er mun skelfilegra fyrir Frammsóknarflokkin, þar sem það sem Höskuldur er að bera fyrir sig, hefur ekkert með framkomið frumvarp að gera og er víst nú aðgengilegt til lestrar á netinu. Sumum finnst þessi framganga benda til að fullur vilji sé til þess að ganga til samstarfs við Sjálfstæðiflokkinn að loknum kosninum. Það vantar illilega þá forustu í Frammsóknarflokkinn sem áður var og mátti treysta, menn eins og þá Ólaf Jóhannesson og Steingrím Hermannsson. Og svo þarf að grafa upp gömlu góðu Samvinnugildin. Skrifað af Sveinn Þorsteins.
|
Flettingar í dag: 49 Gestir í dag: 20 Flettingar í gær: 203 Gestir í gær: 21 Samtals flettingar: 595949 Samtals gestir: 38690 Tölur uppfærðar: 22.11.2024 09:56:29 Um mig Nafn: Sveinn ÞorsteinssonFarsími: 848-4143Tölvupóstfang: svennith@simnet.isStaðsetning: SiglufjörðurÖnnur vefsíða: http://siglofuglar.123.is/Tenglar |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is